Ábyrgð Birtuvers
Við hjá Birtuveri stöndum við bakið á okkar vinnu. Við notum eingöngu viðurkennd og umhverfisvæn efni sem eru prófuð fyrir íslenskar aðstæður.
Gæðaábyrgð
Ef viðskiptavinur er ekki sáttur við framkvæmdina skal gera athugasemd innan 48 klukkustunda og við munum bæta úr því án tafar.
Tryggingar
Birtuver er að fullu tryggt gagnvart tjóni sem kann að verða við vinnu á fasteign.
Árangur
Við ábyrgjumst að þakið eða flöturinn sé laus við mosa og óhreinindi að vinnu lokinni í samræmi við þá þjónustu sem keypt var.